Upplýsingar um lyfið
Fungoral

Fungoral, sem inniheldur virka efnið ketókónazól, er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra. Lyfið hefur áhrif á margar sveppategundir sem algengt er að valdi sýkingum og það er hægt að nota útvortis eða til inntöku. Hársápa er ætluð við flösu og flösuhúðbólgu en hún dregur úr kláða og flögun. Við alvarlegri eða innvortis sýkingum er lyfið tekið inn. Ónæmi sveppa fyrir lyfinu hefur sést í stöku tilfellum og hætta á ónæmismyndun er meiri eftir því sem lyfið er notað lengur. Ketókónazól hefur töluverð áhrif á niðurbrot margra lyfja í lifur. Milliverkanir eru því nokkuð margar og ástæða er til að athuga þær vel ef önnur lyf eru tekin samtímis.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku og útvortis sápa.

Töflur, fullorðnir: 200-400 mg á dag. Töflurnar takist með mat. Sápan er notuð 1-2svar í viku í 2-4 vikur, síðan eftir þörfum. Sápan er látin liggja í hárinu í 3-5 mín. áður en hún er skoluð úr.

Lyfið byrjar að virka innan nokkurra klst. en misjafnt er hvenær áhrifin koma fram, eða eftir því hvaða sveppategund veldur sýkingu, hvar sýkingin er og hvaða lyfjaform er notað.

Um 24 klst. eftir inntöku.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Notaðu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Ketókónazól getur skert lifrarstarfsemi ef það er tekið inn í langan tíma. Ef þörf er á langtímameðferð er æskilegt að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir af völdum lyfsins eftir inntöku eru ógleði og kviðverkir. Við notkun hársápunnar eru engar alvarlegar aukaverkanir skráðar en verði vart við ofnæmiseinkenni eins og mikinn kláða og bjúg skal hætta notkun lyfsins. Aukaverkanir þær sem eru skráðar hér fyrir neðan eiga við eftir inntöku lyfsins.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Kláði
Kviðverkir, ógleði, uppköst
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Gula, dökklitað þvag
Þreyta, lystarleysi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sveppalyf við húðsjúkdómum
McNeil Sweden
Virkt innihaldsefni: Ketókónazól
Skráð: 1.1.1985
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: K yfir 200 JANSSEN
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 10 mm
Deilistrik: Þykkt: 3 mm
Styrkur: 200 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sýruþurrð
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Sápa: Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni. Töflur: Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Sápa: Lyfið berst ekki í brjóstamjólk. Töflur: Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Skammtastærðir eru ekki gefnar upp fyrir börn.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Sé lyfið tekið inn getur það valdið sundli og þannig skert aksturshæfni.

Áfengi:

Ef ketókónazól er tekið inn hefur það áhrif á niðurbrot áfengis í líkamanum. Þetta veldur uppköstum, roða í andliti, örum hjartslætti og hraðari öndun. Því skal ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið inn og ekki í a.m.k. 2 sólarhringa eftir síðasta skammt.

Annað:

Varist að hársápan berist í augu.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Milliverkanir fyrir Fungoral hársápu eru ekki þekktar. Milliverkanir sem geta komið fram við inntöku (Fungoral töflur) eru eftirfarandi:

Sjá allt (31)
Getur haft áhrif á
Sjá allt (144)