Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með astma eða annan öndunarfærasjúkdóm
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið sjóntruflunum og svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur. Sérstakrar varúðar skal gæta við akstur í myrkri.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Annað:
Rotvarnarefni í augndropunum getur skemmt mjúkar augnlinsur. Lyfið er einnig til í formi augndropa án rotvarnarefnis í einnota skammtahylkjum.
Íþróttir:
Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.