Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Ein tafla einu sinni í viku, að morgni, a.m.k. ½ klst. áður en matar eða drykkjar er neytt eða önnur lyf eru tekin. Töflurnar gleypist með fullu glasi af venjulegu vatni. Má hvorki tyggja þær né leysa upp. Ekki má leggjast í lárétta stöðu fyrr en eftir fyrstu máltíð dagsins. Hver tafla inniheldur 70 mg alendrónat og 70 míkrógrömm kólekalsíferól.
Áhrif lyfsins á beinþynningu koma fram á 3 vikum.
Eftir stöðuga töku lyfsins haldast áhrifin á beinþynningu í 12 til 60 vikur eftir að töku þess er hætt.
Nauðsynlegt er að neyta kalkríkrar fæðu.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið næsta morgun eftir að þú manst eftir því. Haltu síðan áfram að taka eina töflu á viku sama dag og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Án vandkvæða.