Fluconazole Portfarma

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Fluconazole Portfarma

Fluconazole Portfarma, sem inniheldur virka efnið flúkónazól, er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra. Flúkónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er oft notað við sveppasýkingum í slímhúð, leggöngum, þvagfærum og húð. Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi. Aukaverkanir flúkónazóls eru flestar vægar og það þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir þess eru tíðari eftir því hvað skammtarnir eru stórir eða tíminn langur sem það er tekið.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Hylki til inntöku.

Sveppasýking í fæðingarvegi: Einn stakur 150 mg skammtur. Aðrar sýkingar: 50-400 mg í senn. Meðferðarlengd fer eftir klínískri svörun eða niðurstöðum rannsókna. Hylkin gleypist heil.

Lyfið byrjar að virka innan nokkurra klst. Misjafnt er hvenær áhrifin koma fram, eða eftir því hvaða sveppategund veldur sýkingu, hvar sýkingin er og hvaða lyfjaform er notað.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða. Flúkónazól er þó í langflestum tilfellum aðeins notað í skamman tíma.

Aukaverkanir

Um 10% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum af aukaverkunum þess.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur
Kviðverkir, niðurgangur, vindgangur
Ógleði og uppköst
Útbrot
Gula
Hjartsláttartruflanir
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sveppalyf
Portfarma
Virkt innihaldsefni: Flúkónazól
Skráð: 1.5.2010
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Grænn
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Hylki Lengd: 18 mm
Lögun: Lok/botn (hylki) Breidd:
Þvermál: 6 mm
Deilistrik: Þykkt:
Styrkur: 50 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

yfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Ekki er mælt með notkun lyfsins handa börnum yngri en 16 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir
Sjá allt (19)
Getur haft áhrif á
Sjá allt (128)