Upplýsingar um lyfið
Fluarix

Inflúensa er veirusýking sem kemur hér á hverju ári og þá einkum á veturna og varir í 2-3 mánuði. Helstu einkenni eru hár hiti, kulda- og hitahrollur, vöðva- og liðverkir. Einnig geta fylgt þessu hósti, nefrennsli, nefstífla og óþægindi í hálsi. Alvarlegir fylgikvillar geta fylgt inflúensunni, eins og t.d. lungnabólga. Þeir eru algengari hjá eldra fólki, einstaklingum með skert ónæmiskerfi, undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma, sykursýki og nýrnasjúkdóma. Fluarix inniheldur hreinsuð prótein sem eru einangruð af yfirborði inflúensuveirunnar og eiga þau að örva líkamann til þess að mynda vörn gegn veirunni án þess að fólk veikist. Bóluefni veitir um 60-90% vörn hjá einstaklingum yngri en 65 ára.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Stungulyf í vöðva eða djúpt undir húð.

Einn skammtur gefinn. Börn sem ekki hafa áður verið bólusett skulu fá annan skammt eftir minnst 4 vikur.

2-3 vikur.

6-12 mánuðir.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Á ekki við þar sem lyfið er bara gefið einu sinni.

Lyfið er aðeins gefið einu sinni.

Á ekki við.

Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir hverfa vanalega innan nokkra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hiti, slappleiki, þreyta
Höfuðverkur
Roði, bólga og eymsli á stungustað
Skjálftahrollur
Svitamyndun
Vöðvaverkir, liðverkir
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Krampar
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bóluefni
GlaxoSmithKline
Virkt innihaldsefni: Inflúensu mótefnavakar
Skráð: 1.10.1994
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir eggjum eða kjúklingi
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:

Konur með barn á brjósti mega nota lyfið.

Börn:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum yngri en 3ja ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi meðferð geta fengið minni mótefnasvörun.