Lyfjaform:
Stungulyf með forðaverkun í vöðva.
20-200 mg í senn á 2-4ra vikna fresti.
2-3 dagar. Hámarksblóðþéttni eftir stakan skammt er 3-7 dögum eftir notkun stungulyfs.
2-4 vikur.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Stungulyfið á að geyma varið ljósi.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
Nauðsynlegt er að fylgjast vel með sjúklingum í langtímameðferð, sérstaklega þeim sem taka stóra skammta. Notkun þeirra til lengri tíma getur leitt til síðkominna hreyfitruflana (tardive dyskinesia). Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum. Líkurnar aukast eftir því sem lyfið er notað lengur. Þessar aukaverkanir geta orðið óafturkræfar, en í flestum tilfellum ganga þær til baka á nokkrum mánuðum eftir að lyfjagjöf er hætt. Ungir sjúklingar fá síður þessar aukaverkanir og þær ganga frekar til baka hjá þeim eftir að lyfjagjöf lýkur. Lyfið getur einnig valdið þyngdaraukningu ef það er notað í langan tíma.