Upplýsingar um lyfið
Flixotide

Flútíkasónprópíónat er notað við bólgusjúkdómum og ofnæmiseinkennum. Það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Lyfið hefur almennt sömu áhrif og svokallaðir sykursterar sem myndast í nýrnaberki. Flútíkasónprópíónat dregur líka úr flæði á bólgumyndandi efnum til lungna, og getur með því móti minnkað eða útrýmt bólgum í nefi og lungum. Flixotide er notað við astma, en astmi er bólgusjúkdómur, og langvinnri lungnateppu. Regluleg notkun flútíkasónprópíónats minnkar bólgurnar og slær á einkennin, óháð því hvort sjúkdómurinn er af völdum ofnæmis eða ekki.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Innúðalyf.

Fullorðnir og börn eldri en 16 ára: 100-1000 míkrógrömm í senn 2svar á dag. Börn eldri en 4ra ára: 50-100 míkrógrömm í senn 2svar á dag. Börn 1-4ra ára: 100 míkrógrömm í senn 2svar á dag, gefið með Babyhaler eða úðabelg. Skola skal munninn með vatni eftir notkun.

Lyfið byrjar strax að virka en sjúklingur verður ekki var við breytingu fyrr en eftir um 10 daga.

Ekki að fullu þekktur en bólgurnar koma smám saman aftur ef sjúkdómurinn er til staðar og notkun lyfsins er hætt.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Ef úðalyfið er geymt á köldum stað getur virkni drifefnisins minnkað.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Ef astmalyf hefur verið notað í stórum skömmtum eða í langan tíma þarf að minnka skammta smám saman áður en notkun þess er hætt.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Æskilegt er að læknir fylgist reglulega með árangri meðferðarinnar.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun eftir notkun astmalyfja sem innihalda flútíkasónprópíónat er sveppasýking í munni. Hægt er að minnka líkur á þessu með því að skola munninn eða bursta tennurnar eftir töku lyfs.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hæsi
Sveppasýking í munni og hálsi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
Öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi
GlaxoSmithKline
Virkt innihaldsefni: Flútíkasónprópíónat
Skráð: 1.7.1994
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið lungnasýkingu, sér í lagi ef þú hefur fengið berkla
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Þegar lyfið er gefið börnum getur þurft að meta hvaða lyfjaform á að nota.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir. Þegar lyfið er gefið eldra fólki getur þurft að meta hvaða lyfjaform á að nota.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Bannað í og utan keppni. Hægt er að sækja um einfaldaða undanþágu til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ.