Upplýsingar um lyfið
Finacea

Finacea er notað útvortis við þrymlabólum (acne vulgaris) og rósroða (rosacea). Virka efnið azelainsýra hefur áhrif á starfsemi húðfrumna í ysta lagi húðarinnar, það hægir á fjölgun þeirra og minnkar fituframleiðslu. Auk þess drepur lyfið bakteríur. Helsti kostur azelainsýru fram yfir önnur lyf við þrymlabólum er sá hvað hún veldur fáum aukaverkunum. Rósroði líkist bólóttri húð unglinga en leggst á fullorðið fólk. Það er ekki vitað með vissu hvernig lyfið virkar á rósroða en talið er að það hafi með bólgueyðandi áhrif lyfsins að gera.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Útvortis hlaup.

Hlaupið er borið á hreina og þurra húð í þunnu lagi 2svar á dag.

Þrymlabólur: Innan 4ra vikna. Rósroði: 4-8 vikur.

Ekki að fullu þekktur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hætta má notkun lyfsins þegar einkennin eru horfin en hafa ber í huga að fullur árangur næst stundum ekki fyrr en eftir nokkurra mánaða meðferð.

Lítil hætta er á öðrum einkennum en staðbundinni ertingu undan hlaupinu.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er brunatilfinning og sviði en í flestum tilfellum eru einkennin væg.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Brunatilfinning, sviði
Erting og roði í húð
Þurr húð, hreistrun
Útbrot, kláði
Bjúgur í andliti

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf við bólum
Intendis
Virkt innihaldsefni: Azelainsýra
Skráð: 1.4.2005
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Lyfið má alls ekki berast í augu. Skolið augu tafarlaust með miklu vatni ef lyfið berst óvart í augu.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Milliverkanir við önnur lyf eru ekki skráðar.