Fenemal Recip

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Fenemal Recip

Fenóbarbítal er notað við flogaveiki. Flogaveikiseinkenni stafa af óeðlilega mikilli virkni taugafrumna í heila og hárri tíðni taugaboða. Breytingarnar geta verið bundnar við lítinn hluta heilans eða náð yfir stóran hluta hans. Fenóbarbítal vinnur gegn flogaköstum með því að takmarka útbreiðslu taugaboða til heilans og einnig hækkar það krampaþröskuldinn. Lyfið virkar á margar tegundir flogaveiki, staðbundin flog og krampaflog, en það hefur ekki áhrif á störuflog.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Skammtar eru einstaklingsbundnir. Algengustu skammtar eru: Fullorðnir: 1-3 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag í einum skammti. Börn yngri en 10 ára: 2-5 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag í 2 skömmtum.

Einstaklingsbundið.

Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Hafðu samband við lækni ef fleiri en einn skammtur gleymast. Ekki taka tvo skammta í einu nema samkvæmt ráði læknis.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Flogum getur fjölgað og þau jafnvel orðið alvarlegri ef töku lyfsins er hætt, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við sljóleika, skerta meðvitund eða öndunarerfiðleika skal hafa samband við lækni strax.

Fylgjast þarf reglulega með styrk fenóbarbítals í blóði. Bein geta einnig orðið stökkari við langtímanotkun.

Aukaverkanir

Nánast allir finna fyrir einhverjum aukaverkunum. Aukaverkanir lyfsins eru yfirleitt vægar og valda venjulega ekki verulegum óþægindum. Oftast er um að ræða syfju og skerta einbeitingu.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Erfiðleikar við að samhæfa hreyfingar
Ósjálfráðar augnhreyfingar og sjóntruflanir
Syfja og skert einbeiting
Rugl hjá öldruðum
Skapstyggð hjá börnum
Útbrot
Aukin tíðni beinbrota

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Flogaveikilyf
Recip
Virkt innihaldsefni: Fenóbarbítal
Skráð: 1.6.2004
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: FE
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 6 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 15 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið hefur áhrif á fóstur og/eða nýbura. Ekki ætti að nota lyfið nema gagnsemi þess fyrir móður sé talin vega þyngra en hugsanleg áhætta fyrir fóstrið.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk í það miklu magni að það getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:

Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Auk þeirra áhrifa sem flogaveikin hefur sjálf, getur lyfið skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:

Eykur sljóvgandi áhrif lyfsins og meiri hætta er á alvarlegum aukaverkunum. Því á ekki að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Annað:

Nauðsynlegt er að bursta tennurnar 2svar á dag með flúortannkremi, til að vinna gegn tannskemmdum af völdum munnþurrks.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og keppni.

Milliverkanir

Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Sjá allt (50)
Getur haft áhrif á
Sjá allt (162)