Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið hefur áhrif á fóstur og/eða nýbura. Ekki ætti að nota lyfið nema gagnsemi þess fyrir móður sé talin vega þyngra en hugsanleg áhætta fyrir fóstrið.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk í það miklu magni að það getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Auk þeirra áhrifa sem flogaveikin hefur sjálf, getur lyfið skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.
Áfengi:
Eykur sljóvgandi áhrif lyfsins og því á ekki að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Annað:
Mikilvægt er að bursta tennur 2svar á dag með flúortannkremi til að vinna gegn ofvexti í tannholdi og tannskemmdum.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.