FSME-Immun vuxne

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
FSME-Immun vuxne

TBE-veira getur valdið mjög alvarlegum sýkingum í heila, heilahimnu og/eða mænu. Helstu einkenni hennar eru höfuðverkur og hár hiti. Í alvarlegum tilfellum getur sjúkdómurinn valdið meðvitundarleysi og jafnvel dauða. Veiran berst með blóðmítlum og er hættan mjög mikill á sumum svæðum í Mið og Norður Evrópu. FSME inniheldur dauðar TBE veirur sem eiga að örva líkamann til þess að mynda vörn gegn veirunni án þess að fólk veikist.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Stungulyf í vöðva.

Grunnbólusetning: Gefnir eru þrír skammtar. Eftir fyrsta skammt skulu 1-3 mánuðir líða þar til næsti skammtur er gefinn. Ef þörf er á að ná fljótlega fram ónæmi þá má gefa annan skammt tveimur vikum eftir fyrsta skammt. Þriðji skammturinn er gefinn 5-12 mánuðum eftir annan skammt. Örvunarskammtur: Gefinn í síðasta lagi 3 árum eftir þriðja skammt. Frekari örvunarskammta ætti að gefa á 3-5 ára fresti.

Full verkun kemur ekki fyrr en eftir að búið er að gefa þriðja skammtinn.

Eftir þriðja skammt virkar lyfið í 3 ár.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef gefnir eru tveir skammtar í einu eða ef skammtarnir eru gefnir með stuttu millibili þá eru meiri líkur á aukaverkunum.

Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur
Ógleði
Roði, bólga og eymsli á stungustað
Vöðvaverkir, liðverkir
Þreyta, lasleiki
Svimi, sjóntruflanir
Krampar
Meðvitundarleysi vegna blóðþrýstingsfalls
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bóluefni
Baxter
Virkt innihaldsefni: TBE veirur
Skráð: 1.6.2004
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með heilasjúkdóm
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með ofnæmi fyrir kjúklingi, eggjum eða latexi
- þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Ekki skal nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Börn:

FSME-Immun junior er ætlað börnum yngri en 16 ára.

Eldra fólk:

Ekki mega líða meira en 3 ár á milli örvunarskammta hjá fólki sem er eldra en 60 ára.

Akstur:

Lyfið getur valdið sjóntruflunum og svima. Því ber að forðast að aka bíl þar til áhrif lyfsins hafa komið í ljós.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi meðferð geta fengið minni mótefnasvörun.