Evorel Sequi

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Evorel Sequi

Evorel Sequi inniheldur tvö virk efni, estradíól og noretísterón. Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Við tíðahvörf minnkar framleiðsla hormónanna estradíóls og prógesteróns og því fylgja ýmis óþægindi. Meðferð með Evorel Sequi miðar að því að vega upp hormónaskortinn og slá á einkenni af völdum tíðahvarfa. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar einnig líkur á beinþynningu þar sem estradíól stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina. Lyfið er því líka gefið konum sem hætta er á að fái beinþynningu að tíðahvörfum loknum. Noretísterón er samtengt hormón með sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Lyfið er gefið um húð í formi forðaplástra og berast hormónin því beint inn í blóðrásina. Evorel Sequi inniheldur tvær gerðir af plástrum, Evorel og Evorel Conti.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Forðaplástur á húð.

1 plástur á húð 2svar í viku. Byrjað er á Evorel (gefur frá sér 50 míkrógrömm estradíól á sólarhring) í 2 vikur og síðan er Evorel Conti (gefur frá sér 50 míkrógrömm estradíól og 170 míkrógrömm noretísterón á sólarhring) notaður í 2 vikur.

Áhrif koma fram á fyrsta mánuði meðferðar og einkenni hormónaskorts hverfa á nokkrum vikum eða mánuðum.

4 dagar.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Settu nýjan plástur á um leið og þú manst eftir honum og haltu síðan áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo plástra í einu. Ef plásturinn dettur af og límist ekki aftur á skaltu setja nýjan plástur af sömu gerð á sama stað og halda síðan áfram að nota lyfið eins og venjulega.

Hætta skal notkun lyfsins í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Nánar ákveðið í samráði við lækni.

Aukaverkanir

Um 15-20% kvenna finna fyrir einhverjum aukaverkunum. Þær eru tíðari í upphafi meðferðar. Algengustu aukaverkanirnar eru roði og kláði undan plástri, spenna í brjóstum og blæðingatruflanir.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Brjóstaspenna
Erting undan plástri
Háþrýstingur
Höfuðverkur, ógleði
Minnkuð kynhvöt
Náladofi
Óeðlilegar blæðingar
Útferð
Verkir
Þyngdaraukning, bjúgur
Gula
Útbrot, kláði, öndunarerfiðleikar
Breytingar í brjóstum
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Kvenhormón
Janssen-Cilag
Virk innihaldsefni: Estradíól, Noretísterón
Skráð: 1.8.1999
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú sért með astma
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið á ekki að nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið á ekki að nota samhliða brjóstagjöf.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.