Upplýsingar um lyfið
Eucreas

Eucreas, sem inniheldur virku efnin vildagliptín og metformín, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem er myndað af betafrumum í briskirtli. Það er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Vildagliptín og metformín eru notuð við sykursýki af tegund II. Vildagliptín er öflugur og sértækur ensímhemill og felst virkni þess í því að draga úr sykurnýmyndun í lifur og auka næmni betafrumna fyrir sykri og leiða þannig til aukinnar sykurháðrar insúlínseytingar. Vildagliptín er notað í tveggja lyfja meðferð ásamt metformíni hér en er stundum notað ásamamt súlfónýlúrealyfi (skráð lyf hér á landi eru glípízíð (Mindiab), glíklazíð (Diamicron Uno) og glímepíríð (Amaryl, Glimeryl)) eða thíazólidíndíonlyfi (skráð lyf hér á landi eru rósíglítazón (Avandia) og píóglítazón (Actos)) ef meðferð með þessum lyfjum einum og sér hefur ekki borið nægilega góðan árangur. Virkni metformíns felst í aukningu á áhrifum insúlíns á vefi líkamans, minnkun sykurnýmyndunar í lifur og upptöku sykurs úr þörmum. Í venjulegum skömmtum sjást áhrif þess á blóðsykur, en aðeins hjá sykursjúkum og ekki heilbrigðum. Of mikil lækkun á blóðsykri getur orðið ef lítillar fæðu er neytt, eftir mikla áreynslu eða ef önnur blóðsykurlækkandi lyf eru tekin samtímis lyfinu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Ein tafla kvölds og morgna. Hver tafla inniheldur 50 mg af vildagliptíni og 850 eða 1000 mg af metformíni. Með því að taka Eucreas með mat eða rétt eftir mat má draga úr einkennum frá meltingarvegi af völdum metformíns. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

1-2 klst. 2 vikur geta liðið þar til náðst hefur stjórn á sykursýkinni.

A.m.k. 12 klst.

Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.

Geymist í lokuðum upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef sjúklingur missir meðvitund skaltu leita neyðarhjálpar.

Reynsla af notkun vildagliptíns í klínískum rannsóknum er ennþá lítil. Mælt er með því að fylgjast með lifrarensímum sjúklinga ásamt nýrna- og hjartastarfsemi.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, sundl, skjálfti
Málmbragð í munni
Of lágur blóðsykur
Ógleði, uppköst, niðurgangur, kviðverkir og minnkuð matarlyst
Þróttleysi
Útbrot, kláði
Kuldahrollur, mikil ógleði eða uppköst, hröð öndun

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sykursýkilyf
Novartis Europharm
Virk innihaldsefni: Metformín, Vildagliptín
Skráð: 1.11.2008
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Gulur Gulur
Áletrun: FLO NVR
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 21 mm
Lögun: Sporöskjulaga Breidd: 8,5 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 7,5 mm
Styrkur: 50 + 1000 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið hjartabilun
- þú neytir áfengis í miklum mæli
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Ekki er mælt með notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir. Hafa skal reglulegt eftirlit með nýrnastarfsemi hjá ölduðum sjúklingum. Notkun lyfsins hefur ekki verið rannsökuð hjá sjúklingum eldri en 75 ára.

Akstur:

Lyfið getur valdið sundli. Ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.

Áfengi:

Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis. Það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Neysla áfengis eykur hættuna á mjólkursýrublóðsýringu. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því að forðast áfengi.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.