Lyfjaform:
Sýruhjúphylki til inntöku.
Fullorðnir og börn þyngri en 35 kg: 500-2000 mg á dag í 2-4 skömmtum. Börn 25-35 kg: 250 mg í senn 2svar á dag. Hylkin gleypist heil. Má hvorki tyggja þau né mylja.
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 4 klst.
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili það sem eftir er dags. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Erýtrómýcín er almennt ekki notað nema til skamms tíma. Sé það notað í langan tíma verður hætta á því að það valdi lifrarskemmdum og þá er æskilegt að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi.