Upplýsingar um lyfið
Engerix-B

Lifrarbólga B er veirusýking sem um 5% Íslendinga hafa sýkst af. Í flestum tilfellum lagast sjúkdómurinn af sjálfu sér en í einstaka tilfellum getur sjúkdómurinn valdið alvarlegum fylgikvillum eins og viðvarandi lifrarbólgu, skorpulifur og lifrarkrabbameini. Helstu smitleiðir lifrarbólgu B veirunnar eru við kynmök, með sýktum nálum, barn getur sýkst við fæðingu ef móðir er sýkt svo og við blóðgjöf en hverfandi líkur eru á því hér á landi þar sem allt blóð sem gefið er, er skimað fyrir lifrarbólgu B. Engerix-B er svokallað dautt bóluefni sem inniheldur ákveðna hluta af dauðri lifrarbólgu B veiru sem eiga að örva líkamann til þess að mynda vörn gegn veirunni án þess að fólk veikist.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Stungulyf í vöðva eða undir húð í undantekningartilfellum.

Börn 15 ára og yngri: 0,5 ml skammtar gefnir 3svar sinnum. Einstaklingar 16 ára og eldri: 1 ml skammtar gefnir 3svar sinnum. Annar skammtur er vanalega gefinn 1 mánuði eftir upphafsskammt. Þriðji skammturinn er gefinn 6 mánuðum eftir upphafsskammt. Hraðáætlun, einstaklingar 16 ára og eldri: Þrír skammtar með mánaðar millibili. Fjórða skammtinn má gefa 12 mánuðum eftir upphafsskammt til þess að fá lengri vörn.

2-4 vikur eftir einn skammt af bóluefninu.

Ekki er vitað með vissu hversu lengi bóluefnið virkar en talið er að það dugi í a.m.k. 10 ár.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtarnir hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Á ekki við.

Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir hverfa vanalega innan fárra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Roði, bólga og eymsli á stungustað
Svimi, náladofi
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Krampar
Mikill höfuðverkur, ógleði og uppköst
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bóluefni
GlaxoSmithKline
Virkt innihaldsefni: Lifrarbólgu B mótefnavakar
Skráð: 1.1.1990
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú reykir
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með einhvern langvinnan sjúkdóm
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú sért með skerta nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Ekki skal nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Börn:

Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir. Aldraðir sýna oft minni svörun.

Akstur:

Lyfið getur valdið sjóntruflunum og svima. Því ber að forðast að aka bíl þar til áhrif lyfsins hafa komið í ljós.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði.