Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.
Börn:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins fyrir börn.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þreytu og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.