Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért ekki með augastein í öðru eða báðum augum
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú sért með öndunarfærasjúkdóm
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Tímólól berst í brjóstamjólk. Konur með barn á brjósti eiga því ekki að nota lyfið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Eins og á við með önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.
Áfengi:
Í litlum skömmtun hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Annað:
Rotvarnarefni í augndropunum getur skemmt mjúkar augnlinsur. Láttu a.m.k. 15 mín. líða þar til þú setur linsurnar í þig eftir að þú hefur notað dropana.
Íþróttir:
Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.