Lyfjaform:
Útvortis hlaup.
Notist útvortis á sýkt svæði einu sinni á dag að kvöldi. Fyrst þarf að þvo bólusvæðið vandlega, skola með volgu vatni og þerra varlega.
Ekki að fullu þekkt og er jafnframt misjafnt eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir virku efnunum. Í sumum tilfellum þarf 4-6 vikna meðhöndlun áður en bati kemur fram.
Bakteríudrepandi áhrif benzóýl peroxíðs vara í minnst 2 sólarhringa en verkunartími klindamýcíns er misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 2ja mánaða frá því að innri umbúðir eru opnaðar.
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hætta má notkun lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar eða þegar ekki er þörf á lyfinu. Samfelld meðferð ætti ekki að vera lengri en 12 vikur nema í samráði við lækni.
Lítil hætta er á öðrum einkennum en staðbundinni ertingu undan lyfinu. Hafðu samband við lækni ef einhver óvenjuleg einkenni koma fram.
Samfelld meðferð ætti ekki að vara lengur en í 12 vikur.