Lyfjaform:
Töflur með breyttan losunarhraða til inntöku.
30-120 mg á dag. Takist rétt fyrir morgunmat. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.
Um 30 mín.
24 klst. eftir stöðuga skammta.
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því nema læknir hafi ráðlagt annað. Mundu að taka lyfið með mat. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Hafðu strax samband við lækni. Einkenni um lítinn blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst. Fylgdu fyrirmælum læknis um viðbrögð við of lágum blóðsykri. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar.
Án vandkvæða. Vegna sykursýkinnar er þó æskilegt að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi.