DiTeKik (afskráð jan. 2012)

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
DiTeKik (afskráð jan. 2012)

Stífkrampi, barnaveiki og kíghósti eru sjúkdómar sem orsakaðir eru af bakteríum. Bakterían sem veldur stífkrampa finnst víða í náttúrunni, t.d. í jarðvegi og húsdýraskít. Því er auðvelt að smitast af henni ef bakterían kemst í opið sár. Bakterían framleiðir eitur sem veldur því að vöðvar herpast saman og stífna og getur þetta ástand valdið dauða ef ekkert er aðhafst. Bakterían sem veldur barnaveiki framleiðir eitur sem getur verið skaðlegt vefjum líkamans, eins og t.d. hjartavöðva og getur þar af leiðandi valdið dauða. Bakterían sem orsakar kíghósta berst manna á milli með úðasmiti. Kíghósti getur verið erfiður og langdreginn og jafnvel lífshættulegur fyrir ungbörn. DiTeKik er unnið úr veikluðum og hreinsuðum eiturefnum þessara baktería.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Stungulyf í vöðva. Í einstaka tilfellum má gefa lyfið djúpt undir húð.

Einn skammtur gefin 2-3svar sinnum með 1-2ja mánaða millibili samkvæmt bólusetningaráætlun hverju sinni. Frumbólusetning hefst í fyrsta lagi við 2ja mánaða aldur.

Vörn gegn barnaveiki og stífkrampa fæst 1-2 vikum eftir aðra bólusetingu. Engar upplýsingar eru til um hvenær full vörn gegn kíghósta fæst.

Vörn dugar í u.þ.b. 10 ár gegn barnaveiki og stífkrampa, ekki er vitað hversu lengi vörnin dugar gegna kíghósta.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Á ekki við.

Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, hiti og vanlíðan
Staðbundinn roði, þroti og eymsli á stungustað
Hár hiti
Krampar
Lítil svörun við áreiti
Óstöðvandi grátur
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bóluefni
Statens Serum Institut
Virk innihaldsefni: Barnaveiki mótefnavakar, Kíghósta mótefnavakar, Stífkrampa mótefnavakar
Skráð: 1.11.1998
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú hafir áður fengið alvarlegar aukaverkanir af bólusetningu
- þú hafir einhvern tíma fengið krampa
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú sért með taugasjúkdóm
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið er ekki ætlað konum á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið er ekki ætlað konum með barn á brjósti.

Börn:

Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:

Lyfið er ekki ætlað eldra fólki.

Akstur:

Á ekki við.

Áfengi:

Á ekki við.

Annað:

Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi lyfjameðferð geta fengið minni mótefnasvörun.