Dehydratin neo

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Dehydratin neo

Hýdróklórtíazíð, virka efnið í Dehydratin neo, hefur blóðþrýstingslækkandi verkun. Það eykur einnig þvagmyndun í nýrum og losar líkamann við vökva. Samfara aukinni vatnslosun eykur hýdróklórtíazíð útskilnað margra salta, aðallega kalíums. Við þetta getur jafnvægi salta í líkamanum raskast og er hýdróklórtíazíð því oft gefið með kalíumi eða í samsetningum með öðrum efnum sem vega þessi áhrif upp. Dehydratin neo er notað við bjúgi vegna hjartabilunar eða af öðrum orsökum. Það er líka notað við of háum blóðþrýstingi, til að draga úr þvagmyndun hjá sjúklingum með flóðmigu (diabetes insipidus).

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Fullorðnir: 12,5-100 mg á dag. Börn: 1-2 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag, að hámarki 37,5 mg á dag fyrir börn yngri en 2ja ára og 100 mg á dag fyrir börn 2-12 ára. Töflurnar gleypist heilar með mat og vökva.

Innan við 2 klst.

6-12 klst.

Þar sem lyfið veldur kalíumtapi er ráðlegt að neyta grænmetis og ávaxta sem innihalda mikið af kalíumi.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymist á dimmum stað.

Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur þótt einn skammtur gleymist. Best er að taka skammtinn þegar munað er eftir honum en óæskilegt er að taka lyfið að kvöldi þar sem það getur kallað á tíð þvaglát um nóttina. Ekki taka tvo skammta í einu.

Einkenni sjúkdóms geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Minnka skal skammta smám saman.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Yfirleitt án vandkvæða. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.

Aukaverkanir

Helsta aukaverkun hýdróklórtíazíðs er kalíumtap og flestar aðrar aukaverkanir stafa af kalíumtapi. Hægt er að fyrirbyggja þetta að mestu leyti með inntöku kalíums samtímis því sem lyfið er tekið. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru höfuðverkur, svimi og þreyta.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Kviðverkir
Lystarleysi
Máttleysi, lasleiki
Munnþurrkur
Skert kynhvöt
Skert viðbragð
Svimi, þreyta
Tíð þvaglát, næturmiga
Þunglyndi
Útbrot, kláði
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Gula
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Þvagræsilyf
Actavis
Virkt innihaldsefni: Hýdróklórtíazíð
Skráð: 1.2.2009
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 8 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 25 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið þvagsýrugigt
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru háðir líkamsþyngd og aldri.

Eldra fólk:

Auknar líkur eru á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og skert viðbragð og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Veldur einnig auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Bannað í og utan keppni.

Milliverkanir

Tíazíð þvagræsilyf geta skert glúkósaþol og því getur þurft að aðlaga skammta sykursýkilyfja, þ.m.t. insúlíns. Samtímis notkun náttúrulyfsins gingko getur valdið hærri blóðþrýstingi.

Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Sjá allt (193)