Coversyl (afskráð okt. 2011)

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Coversyl (afskráð okt. 2011)

Coversyl, sem inniheldur virka efnið perindópríl, tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í þessum flokki hamla myndun angíótensíns II en það er eitt öflugasta æðaþrengjandi efni í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II útskilnað vatns í nýrum, við það eykst rúmmál blóðs og stuðlar þannig enn frekar að hækkun blóðþrýstingsins. Lyfin hindra líka niðurbrot á æðavíkkandi efni í líkamanum, bradýkíníni. Coversyl er notað við háþrýstingi og til þess að minnka álag á hjartað hjá sjúklingum með hjartabilun. Þvagræsilyf eru oft notuð samtímis perindópríli, sérstaklega þegar lyfið er gefið við hjartabilun.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

2-8 mg á dag að morgni fyrir máltíð. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

1 klst. Hámarksáhrif koma fram eftir 4-6 klst.

24 klst. eftir stakan skammt.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegt er að minnka skammta smám saman frekar en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi, þróttleysi
Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða
Lágur blóðþrýstingur
Meltingartruflanir
Náladofi
Ógleði og uppköst
Sinadráttur
Sjóntruflanir
Truflun á bragðskyni
Þurr hósti
Útbrot, kláði
Mæði
Gula
Hjartsláttartruflanir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
Servier
Virkt innihaldsefni: Perindópríl
Skráð: 1.1.1992 Afskráð: 1.10.2011
Útlit
Afskráð: 1.10.2011
A-hlið B-hlið
Litur: Grænn Grænn
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 8 mm
Lögun: Ílöng Breidd: 4 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 4 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Perindópríl getur dregið úr kalíumtapi af völdum þvagræsilyfja og því skal hafa það í huga og fylgjast vel með kalíumþéttni í blóði hjá þeim sjúklingum sem fá kalíumsparandi þvagræsilyf eða taka kalíum inn aukalega. Samtímis notkun blóðþrýstingslækkandi lyfja, t.d. beta-blokka, getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif perindópríls. Perindópríl getur aukið blóðsykurlækkandi áhrif insúlíns og sykursýkilyfja til inntöku.

Sjá allt (86)