Upplýsingar um lyfið
Cosopt

Cosopt er notað við gláku. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu augnvökva og frárennslis hans þannig að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Mismunandi lyf geta átt við eftir því um hvora tegundina er að ræða. Cosopt er notað við gleiðhornsgláku og inniheldur tvö virk efni, dorzólamíð og tímólól. Þau lækka bæði augnþrýsting með því að draga úr framleiðslu augnvökva, en gera það hvort með sínum hætti. Með því að nota þessi tvö virku efni saman eins og hér er gert má ná fram enn frekari lækkun á augnþrýstingi og er lyfið því notað við gláku þegar meðferð með tímólól eingöngu hefur ekki borið fullnægjandi árangur.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Augndropar.

1 dropi í auga 2svar á dag.

15-20 mín.

12 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita og varið ljósi, þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Fylgjast þarf reglulega með augnþrýstingi til að meta áhrif lyfsins. Einnig getur þurft að fylgjast með aukaverkunum þess, sérstaklega hvort það hefur áhrif á hjarta.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins er+u sjóntruflanir og erting í augum. Aðrar aukaverkanir eru flestar mjög sjaldgæfar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Aukin táramyndun
Máttleysi, ógleði, beiskt bragð
Sviði eða erting í augum
Þokusýn, höfuðverkur
Roði og bólga í augum eða augnlokum
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Glákulyf
Merck Sharp & Dohme
Virk innihaldsefni: Dorzólamíð, Tímólól
Skráð: 1.3.1999
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú notir augnlinsur
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með lungnaþembu eða astma
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið sjóntruflunum og svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Rotvarnarefni í augndropunum geta skemmt mjúkar augnlinsur.

Íþróttir:

Bannað í og utan keppni.

Milliverkanir

Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 10 mín. á milli ídreypinga.

Sjá allt (27) Sjá allt (76)