Lyfjaform:
Stungulyf með forðaverkun í vöðva.
100-400 mg í senn á 2-4ra vikna fresti.
Áhrif koma fram á 1-8 klst. eftir notkun stungulyfs, allt eftir ástandi sjúklings.
Stungulyf með forðaverkun: 2-4 vikur.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
Nauðsynlegt er að fylgjast vel með sjúklingum á langtímameðferð. Notkun til lengri tíma getur leitt til síðkominna hreyfitruflana (tardiv dyskinesia). Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum. Líkurnar aukast eftir því sem lyfið er notað lengur. Þessar aukaverkanir geta verið óafturkræfar, en í flestum tilfellum ganga þær til baka á nokkrum mánuðum eftir að lyfjagjöf er hætt. Ungir sjúklingar fá síður þessar aukaverkanir og þær ganga frekar til baka hjá þeim eftir að lyfjagjöf er hætt. Munnþurrkur af völdum lyfsins getur skaðað tannhold og slímhúð í munni við langtímanotkun og góð tannhirða því nauðsynleg.