Ciprofloxacin Portfarma

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Ciprofloxacin Portfarma

Cíprófloxacín er breiðvirkt sýklalyf. Það hindrar afritun erfðaefnis í bakteríum og kemur þannig í veg fyrir að frumur skipti eða fjölgi sér. Cíprófloxacín er notað við ýmsum bakteríusýkingum, t.d. í þvagfærum, blöðruhálskirtli, maga og þörmum. Það þolist yfirleitt vel og aukaverkanir þess eru tiltölulega fátíðar. Lyfið hentar þó síður börnum eða þunguðum konum þar sem það getur hugsanlega valdið sinaskemmdum og liðbólgu í börnum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur cíprófloxacín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku og innrennslislyf í bláæð.

Fullorðnir: 500-1500 mg á dag í 1-2 skömmtum. Börn: 10-20 mg á hvert kg líkamsþyngdar 2svar á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 1-2 klst.

Um 12 klst. eftir stakan skammt.

Forðist koffein á meðan lyfið er tekið. Mjólkurmatur og steinefnabættur ávaxtasafi getur dregið úr nýtingu á lyfinu, taktu því lyfið 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir að hafa neytt slíkra drykkja eða mjólkurmatar.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Innrennslislyfið má ekki geyma í kæli og það má ekki frjósa.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Cíprófloxacín er yfirleitt notað í skamman tíma í einu. Ef þörf þykir að nota það í langan tíma er æskilegt að fylgst sé reglulega með starfsemi nýrna og lifrar.

Aukaverkanir

Óþægindi frá meltingarvegi eru algengust, en tæplega 4% þeirra sem taka lyfið finna fyrir þessum einkennum.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Meltingartruflanir, kviðverkir, vindgangur
Minnkuð matarlyst
Ógleði, uppköst, niðurgangur
Svimi, höfuðverkur, þreyta
Viðbrögð á stungustað (innrennslislyf)
Útbrot, kláði og hiti í húð
Æsingur, skjálfti, rugl
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hraður hjartsláttur
Krampar
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
Portfarma
Virkt innihaldsefni: Cíprófloxacín
Skráð: 1.6.2009
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: 4
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 11 mm
Deilistrik: Þykkt: 4 mm
Styrkur: 250 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru háðir sýkingu og líkamsþyngd.

Eldra fólk:

Skammtar eru háðir sýkingu.

Akstur:

Í stöku tilfellum getur lyfið valdið svima og skert þannig aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Forðast skal sólarljós og útfjólublátt ljós í miklum mæli meðan á meðferð stendur.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og keppni.