Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið skal ekki gefa konum á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Ekki skal gefa lyfið nema brýna nauðsyn beri til.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað stúlkum yngri en 10 ára.
Eldra fólk:
Lyfið er venjulega ætlað konum yngri en 55 ára.
Akstur:
Áhrif lyfsins á akstur hafa ekki verið könnuð.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð, í húð eða undir húð.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.