Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með einhverja meltingarkvilla
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartslátt. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.