Lyfjaform:
Stungulyf undir húð.
1 skammtur 2svar á dag. Hver skammtur inniheldur 5 eða 10 míkrógrömm af exenatíði. Gefa þarf lyfið innan 60 mín. fyrir kvöld- og morgunmat eða fyrir tvær aðalmáltíðir dagsins. Lyfið á ekki að gefa eftir máltíð.
Áhrif lyfsins koma fljótt fram.
A.m.k. 12 klst.
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.
Geymist í lokuðum umbúðum, varið ljósi og á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfjapenni í notkun geymist í 30 daga við lægra hitastig en 25°C. Lyfið má ekki frjósa.
Slepptu þeim skammti sem gleymdist og haltu áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum.
Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
Takmörkuð reynsla er af langtímanotkun lyfsins. Vegna sykursýkinnar er æskilegt að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi.