Upplýsingar um lyfið
Buronil

Buronil inniheldur virka efnið melperón. Lyfið er sefandi og notað við bráðum og langvinnum sturlunareinkennum og elliglöpum. Það er líka notað við fráhvarfseinkennum áfengissýki hjá áfengissjúklingum. Talið er að þessi einkenni komi fram vegna of mikillar virkni ákveðinna taugaboðefna í heila þaðan sem skapferli, hegðun og skynjun er stjórnað. Melperón minnkar virkni dópamíns, en dópamín er eitt þessara boðefna í heila. Áhrifa melperóns gætir víða í heilanum, lyfið raskar þ.a.l. jafnvægi boðefnanna og það getur aftur leitt til hreyfitruflana sem líkjast einkennum parkinsonsveiki og ósjálfráðra hreyfinga.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

25-400 mg á dag, mismunandi eftir sjúkdómsástandi. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

30-60 mín. Verkun gegn sturlunareinkennum kemur venjulega eftir nokkrar vikur.

Ekki að fullu þekktur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.

Nauðsynlegt er að fylgjast vel með sjúklingum í langtímameðferð. Notkun til lengri tíma getur leitt til síðkominna hreyfitruflana (tardive dyskinesia). Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum. Líkurnar aukast eftir því sem lyfið er notað lengur. Þessar aukaverkanir geta verið óafturkræfar en í flestum tilfellum ganga þær til baka á nokkrum mánuðum eftir að lyfjagjöf er hætt. Ungir sjúklingar fá síður þessar aukaverkanir og þær ganga frekar til baka hjá þeim eftir að lyfjagjöf er hætt. Munnþurrkur af völdum lyfsins getur skaðað tannhold og slímhúð í munni við langtímanotkun og góð tannhirða því nauðsynleg.

Aukaverkanir

Um 12% sjúklinga fá einhverjar aukaverkanir, oftast í upphafi meðferðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Munnþurrkur
Svimi, sljóleiki
Hreyfitruflanir, parkinsonseinkenni
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sefandi lyf
Lundbeck
Virkt innihaldsefni: Melperón
Skráð: 1.12.1972
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Gulur Gulur
Áletrun:
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 8,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 4,5 mm
Styrkur: 25 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með blóðsjúkdóm
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með gláku
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú sért með æxli í nýrnahettum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.