Bricanyl Retard

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Bricanyl Retard

Bricanyl Retard er skjótvirkt astmalyf sem er notað við astma og lungnasjúkdómum með berkjuþrengingum. Terbútalín, virka efni lyfsins, veldur vöðvaslökun í lungnaberkjum, víkkar með því öndunarveginn og auðveldar öndun. Lyfið slær fljótt á einkenni astma en það hefur ekki áhrif á sjálfan sjúkdóminn. Áhrif terbútalíns eru því tiltölulega skammvinn. Ef lyfið er notað á undan bólgueyðandi astmalyfjum við slæmum astma komast síðarnefndu lyfin betur í lungun og hafa meiri áhrif.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Forðatöflur til inntöku.

Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 10-15 mg á dag í 1-2 skömmtum. Börn 5-12 ára: 5 mg kvölds og morgna. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja.

30-60 mín.

Allt að 12 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Æskilegt er að læknir fylgist reglulega með árangri meðferðarinnar.

Aukaverkanir

Lyfið getur valdið einkennum um ofvirkni hjá börnum.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur
Skjálfti
Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot
Útbrot og mikill kláði
Öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi
Astra Zeneca
Virkt innihaldsefni: Terbútalín
Skráð: 1.1.1985
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: A yfir TS
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 7 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 5 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 5 ára. Þegar lyfið er gefið börnum getur þurft að meta hvaða lyfjaform á að nota.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir. Þegar lyfið er gefið eldra fólki getur þurft að meta hvaða lyfjaform á að nota.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Bannað í og utan keppni.