Upplýsingar um lyfið
Boostrix

Stífkrampi, barnaveiki og kíghósti eru sjúkdómar sem orsakaðir eru af bakteríum. Bakterían sem veldur stífkrampa finnst víða í náttúrunni, t.d. í jarðvegi og húsdýraskít er því auðvelt að smitast af henni ef bakterían kemst í opið sár. Bakterían framleiðir eitur sem veldur því að vöðvar herpast saman og stífna og getur þetta ástand valdið dauða ef ekkert er aðhafst. Bakterían sem veldur barnaveiki framleiðir eitur sem getur verið skaðlegt vefjum líkamans, eins og t.d. hjartavöðva og getur þar af leiðandi valdið dauða. Bakterían sem orsakar kíghósta berst manna á milli með úðasmiti. Kíghósti getur verið erfiður og langdreginn og jafnvel lífshættulegur fyrir ungbörn. Boostrix vekur upp mótefnasvörun í líkamanum án þess að fólk veikist af þessum sjúkdómum og veitir þannig vörn gegn þeim.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Stungulyf í vöðva.

Einn skammtur gefinn einu sinni samkvæmt bólusetningaráætlun hverju sinni.

Vörn fæst strax þar sem lyfið er eingöngu gefið til þess að örva fyrri bólusetningar gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.

Við barnaveiki og stífkrampa dugar bólusetningin í u.þ.b. 10 ár. Ekki er vitað í hversu langan tíma vörn gegn kíghósta varir.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa. Nota þarf hettuglasið innan 8 klst. frá því að umbúðir hafa verið rofnar.

Ef skammtur gleymist ber að gefa skammtinn um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að magn af mótefnum í líkamanum sé ekki nægilegt.

Á ekki við þar sem lyfið er bara gefið einu sinni.

Á ekki við.

Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hiti
Höfuðverkur, svimi
Lystarleysi
Pirringur
Staðbundinn verkur og bólga á stungustað
Svefnhöfgi, þreyta, lasleiki
Uppköst, niðurgangur
Krampar
Lítil svörun við áreiti
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bóluefni
GlaxoSmithKline
Virk innihaldsefni: Barnaveiki mótefnavakar, Kíghósta mótefnavakar, Stífkrampa mótefnavakar
Skráð: 1.1.2007
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir áður fengið alvarlegar aukaverkanir af bólusetningu
- þú hafir einhvern tíma fengið krampa
- þú sért með blæðingasjúkdóm
- þú sért með heilakvilla
- þú sért með hita eða sýkingu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skert ónæmiskerfi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Ekki má nota lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Annað:

Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi lyfjameðferð geta fengið minni mótefnasvörun.