Lyfjaform:
Töflur til inntöku og stungulyf í bláæð.
Töflur: 150 mg einu sinni í mánuði, að morgni, helst alltaf á sömu dagsetningu hvers mánaðar. Töflurnar gleypist heilar með fullu glasi af venjulegu vatni. Má hvorki sjúga þær né tyggja. Það á að vera í uppréttri stöðu meðan verið er að taka töfluna og í 60 mín. eftir inntöku. Stungulyf: 3 mg á 3ja mán. fresti.
Lyfið byrjar strax að verka.
Ekki að fullu þekktur.
Mælt er með töku kalks og D-vítamíns samhliða lyfjagjöfinni nema tryggt sé að nægjanlegt magn af þessum efnum fáist úr fæðunni.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið næsta morgun eftir að þú manst eftir því séu fleiri en 7 dagar til næsta skammts. Séu færri en 7 dagar til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Drekka skal fullt glas af mjólk og hafa strax samband við lækninn sem ávísaði lyfinu.
Án vandkvæða.