Lyfjaform:
Töflur til inntöku og innrennslisvökvi.
50 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með fullu glasi af venjulegu vatni. Má hvorki sjúga þær né tyggja. Það á að vera í uppréttri stöðu meðan verið er að taka töfluna og í 60 mín. eftir inntöku. Innrennslisvökvinn er eingöngu notaður á sjúkrahúsum.
Lyfið byrjar strax að verka.
Ekki að fullu þekktur.
Mælt er með töku kalks og D-vítamíns samhliða lyfjagjöfinni nema tryggt sé að nægjanlegt magn af þessum efnum fáist úr fæðunni.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Drekka skal fullt glas af mjólk og hafa strax samband við lækninn sem ávísaði lyfinu.
Fylgjast þarf reglulega með nýrnastarfsemi sem og styrk kalsíums, fosfats og magnesíum í sermi.