Bicalutamid Actavis

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Bicalutamid Actavis

Bicalutamid Actavis tilheyrir flokki krabbameinslyfja sem hafa verkun á innkirtla líkamans. Virka efnið bíkalútamíð hefur andandrógen áhrif sem byggist á því að lyfið hindrar áhrif andrógena á svarfrumur þeirra, til dæmis í blöðruhálskirtli, en andrógen eru karlkynshormón. Þessi hindrunaráhrif leiða til þess að æxli í blöðruhálskirtli minnka. Bíkalútamíð hefur ekki áhrif á verkun annarra hormóna.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

50 eða 150 mg í senn einu sinni á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Skammur tími líður þar til lyfið fer að verka.

7 dagar.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum.

Fylgjast skal reglulega með lifrarstarfsemi.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru eymsli í brjóstum og brjóstastækkun, þróttleysi og útbrot.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Brjóstastækkun, eymsli í brjóstum
Getuleysi, breyting á kynhvöt
Hárlos, þurr húð
Hitakóf
Hægðatregða
Lystarleysi
Meltingartruflanir, kviðverkir, vindgangur
Þróttleysi, syfja
Þunglyndi
Þyngdaraukning
Útbrot, kláði
Gula
Hjartsláttartruflanir
Verkur fyrir brjósti, mæði
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf með verkun á innkirtla
Actavis
Virkt innihaldsefni: Bíkalútamíð
Skráð: 1.9.2007
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: BCM yfir 50
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 6,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 50 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið er ekki ætlað konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið er ekki ætlað konum.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið syfju og svefnhöfga. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Eykur líkur á lifrarskaða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.