Lyfjaform:
Töflur og mixtúra til inntöku og stungulyf í æð.
Fullorðnir: 2-3 töflur (750-1750 mg amoxicillín) á dag. Hver tafla inniheldur 125 mg af klavúlansýru. Börn: 20-70 mg af amoxicillíni á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Takist inn með mat. Mixtúran hristist fyrir notkun. Stungulyfið er eingöngu notað á sjúkrahúsum.
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 1-2 klst.
Um 8 klst. eftir stakan skammt.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá. Uppleyst mixtúra geymist í 1 viku í kæli.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili. Ekki taka tvo skammta í einu.
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Augmentin er venjulega gefið í skamman tíma í senn.