Atenolol Mylan

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Atenolol Mylan

Atenólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri eins og hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða hvort þeir komist til miðtaugakerfis eða ekki. Atenólól hefur sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það minnkar samdráttarkraft hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur atenólól færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, t.d. hefur það lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það vel. Atenólól hefur aftur á móti ekki jafn breitt notkunarsvið og ósérhæfðu lyfin og það er því aðeins notað við háþrýstingi og hjartaöng.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

50-200 mg á dag tekið inn í 1-2 skömmtum.

3 klst.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu skammtinn um leið og þú manst eftir honum. Ef færri en 8 klst. eru til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómur getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru þreyta og slappleiki og koma fyrir hjá 0,5-5% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hand- eða fótkuldi
Kviðverkir, niðurgangur
Ógleði og uppköst
Þreyta, slappleiki
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
Gula
Skapgerðarbreytingar
Útbrot, kláði
Verkur fyrir brjósti, mæði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Beta-blokkar
Mylan
Virkt innihaldsefni: Atenólól
Skráð: 1.1.1991
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: AT yfir 25 G
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 7 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 25 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Getur dregið úr áhrifum atenólóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Milliverkanir

Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá allt (24) Sjá allt (99)