Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
300-600 mg í senn á 3-4 klst. fresti, mest 3.600 mg á dag.
Verkjastillandi áhrif koma fram eftir 30-40 mín.
Misjafn eftir notkun. Hitalækkandi áhrif vara lengur en verkjastillandi áhrif.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Ef lyfið er tekið við tilfallandi verkjum eða hita má hætta töku þess þegar einkenni eru ekki lengur til staðar. Í öðrum tilfellum skaltu hafa samband við lækni áður en töku lyfsins er hætt.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Við langtímanotkun getur lyfið valdið magasári og magablæðingu. Því gæti reynst nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.