Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með berklasýkingu í öndunarvegi
- þú sért með laktósa óþol
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með sýkingu í augum
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Annað:
Sjúklingar þurfa að hafa strax samband við lækni ef astmaköst svara ekki verkun berkjuútvíkkandi lyfja meðan á meðferð með þessu lyfi stendur. Það getur bent til þess að astminn hafi versnað. Sjúklingar þurfa alltaf að hafa fljótvirkt berkjuútvíkkandi lyf til staðar ef til berkjukrampa kemur.
Íþróttir:
Bannað í og utan keppni. Hægt er að sækja um einfaldaða undanþágu til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ.