Arthrotec Forte

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Arthrotec Forte

Arthrotec Forte inniheldur tvö virk efni, díklófenak og mísóprostól. Lyfið er notað við gigtarsjúkdómum og öðrum bólgusjúkdómum, einkum hjá þeim sem þurfa sérstaklega á fyrirbyggjandi meðferð að halda við sárum í maga og skeifugörn, en sárin eru tilkomin vegna bólgueyðandi gigtarlyfja. Hér er um að ræða einstaklinga sem þjást af gigtarsjúkdómi eða bólgusjúkdómi, eru eldri en 75 ára, eiga sögu um ætisár eða blæðingar í meltingarvegi. Þeir sem hafa blóðþurrðarhjartasjúkdóm skipa líka þennan flokk. Díklófenak er bólgueyðandi með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Díklófenak dregur úr myndun prostaglandín efna í líkamanum, en þau stuðla meðal annars að bólgumyndum. Mísóprostól er óvirkt efni sem brotnar niður í líkamanum og verður virkt afbrigði af efninu prostaglandín E1. Mísóprostól dregur úr sýrumyndun í maga, það eykur slímmyndun í maga og skeifugörn ásamt því að auka seytingu bíkarbónats í skeifugörn. Það vinnur því gegn ertandi áhrifum bólgueyðandi gigtarlyfja á maga og skeifugörn. Þá eykur mísóprostól vöðvaspennu í legi.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

1 tafla 2svar á dag. Töflurnar gleypist heilar eftir máltíð. Hver tafla inniheldur 75 mg díklófenak og 0,2 mg mísóprostól. Töflurnar má ekki tyggja, mylja, skipta eða leysa upp í vatni.

Mismunandi eftir ástandi sjúklings.

Mismunandi eftir ástandi sjúklings.

Með því að taka lyfið inn strax eftir máltíðir er hægt að draga úr tíðni aukaverkana.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sjúkdómurinn getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru of stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Æskilegt er að fara reglulega í eftirlit til læknis til að meta áhrif lyfsins á lifur, blóðhag og maga.

Aukaverkanir

Óþægindi frá meltingarvegi eru algengustu aukaverkanir lyfsins. Draga má úr aukaverkunum lyfsins með því að nota lyfið í eins litlum skömmtum og í eins stuttan tíma og mögulegt er.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi
Kviðverkir, uppþemba, vindgangur
Lystarleysi
Meltingartruflanir, hægðatregða
Ógleði, uppköst, niðurgangur
Svefnleysi
Útbrot, kláði
Gula
Óeðlilegar blæðingar
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf
Pfizer
Virk innihaldsefni: Díklófenak, Mísóprostól
Skráð: 1.9.2009
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: A A A 75 SEARLE yfir 1421
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 11,5 mm
Deilistrik: Þykkt: 6 mm
Styrkur: 75 + 0,2 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með blæðingartilhneigingu
- þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
- þú sért með magabólgu
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið má ekki nota á meðgöngu vegna áhrifa þess á leg.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.

Getur haft áhrif á
Sjá allt (172)