Lyfjaform:
Stungulyf undir húð.
Skammtar eru einstaklingsbundnir og á að gefa þá rétt fyrir máltíð (0-15 mín.) eða fljótlega eftir máltíð.
Innan við 10-20 mín.
5-6 klst.
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.
Geymist í lokuðum umbúðum, varið ljósi og á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymsluþol lyfsins við stofuhita er 4 vikur. Lyfið má ekki frjósa. Lyfjapenna sem er í notkun má ekki geyma í kæli.
Hafðu samband við lækni. Misjafnt er eftir einstaklingum hvaða viðbrögð eiga við.
Alls ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Insúlínmeðferð við insúlínháðri sykursýki er ævilöng.
Hafðu strax smaband við lækni. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst. Fylgið fyrirmælum læknis við of lágum blóðsykri. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
Mælt er með því að fylgjast með lifrarensímum ásamt nýrna- og hjartastarfsemi.