Upplýsingar um lyfið
Angemin

Angemin inniheldur tvö virk efni, estradíól og dróspírenón. Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir og dróspírenón er samtengt prógestagen. Við tíðahvörf minnkar framleiðsla hormónanna, estradíóls og prógesteróns, og því fylgja ýmis óþægindi, eins og hitakóf, svefntruflanir og óþægindi í fæðingarvegi. Meðferð með Angemin miðar að því að vega upp hormónaskortinn og slá á einkenni af völdum tíðahvarfa. Lyfið er fyrir konur sem eru enn með leg og hafa ekki haft tíðablæðingar í meira en eitt ár. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar einnig líkur á beinþynningu þar sem estradíól stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina. Dróspírenón hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Dróspírenón er gefið með estradíóli til að hindra ofvöxt í slímhimnu legsins. Angemin viðheldur hinsvegar ekki reglulegum tíðablæðingum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

1 tafla á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar gleypist með vatnsglasi. Hver tafla inniheldur 1 mg estradíól og 2 mg dróspírenón.

Áhrif koma fram á fyrsta mánuði meðferðar og einkenni hormónaskorts hverfa á nokkrum vikum eða mánuðum.

Estradíól er u.þ.b. sólarhring að fara úr líkamanum. Dróspírenón er u.þ.b. 2 vikur að fara úr líkamanum.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef fleiri en 48 klst. líða frá síðasta skammti skaltu sleppa þeim sem gleymdist og taka næstu töflu á réttum tíma. Ekki taka tvær töflur í einu.

Hætta skal töku lyfsins í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Nánar ákveðið í samráði við lækni.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hitakóf
Hvítleit útferð, blæðingartruflanir
Höfuðverkur, þreyta, ógleði
Kviðverkir, uppþemba
Skapgerðarbreytingar
Verkur í útlimum
Breytingar í brjóstum
Stækkun brjósta, stækkun vöðvahnúta í legi
Gula
Háþrýstingur
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Kvenhormón
Bayer Pharma
Virk innihaldsefni: Dróspírenón, Estradíól
Skráð: 1.6.2005
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Rauður Rauður
Áletrun: DL
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 0 mm
Styrkur: 1 + 2 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú sért með astma
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið á ekki að nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið á ekki að nota samhliða brjóstagjöf.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.