Anastrozol Actavis

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Anastrozol Actavis

Anastrozol Actavis tilheyrir flokki krabbameinslyfja sem hafa letjandi verkun á ensím í líkamanum. Ensím örva framleiðslu á hinum ýmsu efnum sem líkaminn framleiðir, og þar með talið estradíól. Anastrózól, virka efnið í lyfinu, dregur úr myndun estradíóls með því að hindra áhrif ensímkerfis sem nefnist arómata ensímsamstæðan. Það að lækka styrk estradíóls í blóði hefur jákvæð áhrif á brjóstakrabbamein. Anastrozol Actavis er ætlað konum eftir tíðahvörf.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

1 mg á dag.

Lyfið nær hámarksstyrk í blóði innan 2ja klst.

Nokkrir dagar.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Fylgjast skal reglulega með lifrarstarfsemi.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru höfuðverkur, hitakóf, ógleði, útbrot, verkir og stirðleiki í liðum og þróttleysi. Einhverrar hækkunar á kólesteróli hefur gætt.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Beinverkir
Beinþynning
Hárlos
Hitakóf
Höfuðverkur
Kólesterólhækkun
Lystarleysi
Ógleði, uppköst, niðurgangur
Verkir og stirðleiki í liðum
Þróttleysi, svefnhöfgi
Þurrkur í leggöngum
Útbrot og kláði
Blæðing úr leggöngum
Gula
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf með verkun á innkirtla
Actavis
Virkt innihaldsefni: Anastrózól
Skráð: 1.3.2011
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: ANA yfir 1
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Hringlaga Breidd:
Kúpt Þvermál: 6 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 1 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með beinþynningu
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið má ekki nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið má ekki nota samhliða brjóstagjöf.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið þróttleysi og svefnhöfga. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Eykur líkur á lifrarskaða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Bannað í og utan keppni.