Amoxicillin Mylan

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Amoxicillin Mylan

Amoxicillín er breiðvirkt pensilínsamband. Það hefur áhrif á margar tegundir baktería sem valda sýkingum, en ónæmi baktería fyrir lyfinu fer ört vaxandi. Amoxicillín er oftast notað við sýkingum í eyrum, öndunarvegum, þvagfærum og við lekanda. Það er líka notað ásamt öðrum lyfjum, sem minnka sýruframleiðslu í maga, til þess að uppræta sýkingar sem valda endurteknum maga- eða skeifugarnarsárum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur amoxicillín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu. Húðútbrot eru algeng af völdum lyfsins, sérstaklega ef sjúklingur er með vissar veirusýkingar. Þessi húðútbrot þýða þó ekki alltaf það að sjúklingur sé með pensilínofnæmi. En einkenni á borð við hita, bólgna tungu eða háls, og öndunarerfiðleika gefa venjulega til kynna að viðkomandi hafi ofnæmi fyrir öllum pensilínsamböndum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur, hylki og mixtúra til inntöku.

Fullorðnir: 750-2000 mg á dag í 2-4 skömmtum. Börn: 20-50 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag í 2-3 skömmtum. Hylkin gleypist heil en töflurnar má brjóta. Mixtúran hristist fyrir notkun.

Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 1-2 klst.

Um 8 klst. eftir stakan skammt.

Engin.

Töflurnar og hylkin geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Uppleyst mixtúra geymist í 10 daga við lægri hita en 25°C og í 2 vikur í kæli.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili. Ekki taka tvo skammta í einu.

Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Amoxicillín er venjulega gefið í skamman tíma í senn.

Aukaverkanir

Um 5% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum aukaverkunum þess. Algengastar eru óþægindi í meltingarfærum og húðútbrot.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Ógleði, uppköst, niðurgangur
Útbrot, kláði
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sýklalyf
Mylan
Virkt innihaldsefni: Amoxicillín
Skráð: 1.4.1993
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Gulur Rauðbrúnn
Áletrun: AX500 G
Mynd:
Gerð: Hylki Lengd: 23,5 mm
Lögun: Lok/botn (hylki) Breidd: 0 mm
Þvermál: 7 mm
Deilistrik: Þykkt: 0 mm
Styrkur: 500 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú hafir fengið ofnæmisviðbrögð við pensilín sýklalyfi
- þú sért með skerta nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:

Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.