Upplýsingar um lyfið
Amló

Amló tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn mikið háðar flæði kalsíums inn í frumuna. Áhrif kalsíumblokkara beinast því að mestu við frumurnar með lítið kalsíum, eða vöðvafrumur í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru síðan flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinast að æðum eða hjarta. Virka efnið amlódipín hefur fyrst og fremst æðavíkkandi áhrif. Það víkkar bæði kransæðar og slagæðar, minnkar með því móti blóðþrýsting og eykur blóðflæði til hjartavöðva. Amló er notað við háþrýstingi, hjartaöng og æðakrampaöng.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Fullorðnir: 5-10 mg á dag. Börn 6-17 ára: 2,5-5 mg á dag. Ekki er hægt að skipta 5 mg töflu í tvo jafna skammta. Töflurnar takist með vatnsglasi.

Áhrif á háþrýsting: 1-4 dagar.

1-2 dagar eftir stöðuga töku lyfsins.

Greipaldinsafi getur haft áhrif á útskilnað amlódipíns úr líkama.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ökklabjúgur. Þessi aukaverkun er skammtaháð og er tíðni hennar um 3% hjá þeim sem taka 5 mg á dag en um 11% hjá þeim sem taka 10 mg á dag.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bjúgur í útlimum
Höfuðverkur, svimi, þreyta
Ógleði, kviðverkir
Roði í andliti
Gula
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttarónot
Verkur fyrir brjósti, mæði
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Kalsíumgangalokar
Actavis
Virkt innihaldsefni: Amlódipín
Skráð: 1.3.1998
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: AB yfir 5
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd:
Lögun: Hringlaga Breidd:
Flöt Þvermál: 8 mm
Deilistrik: Þykkt: 2,5 mm
Styrkur: 5 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:

Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.