Alprazolam Mylan

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Alprazolam Mylan

Alprazolam Mylan, sem inniheldur virka efnið alprazólam, tilheyrir flokki lyfja sem kallast benzódíazepín. Lyf í þessum flokki hafa öll sama verkunarmáta, þau auka áhrif hamlandi taugaboðefnis (GABA) á vissum stöðum í heila. Þau hafa öll róandi, kvíðastillandi, krampastillandi og vöðvaslakandi áhrif. Munur á benzódíazepínlyfjum felst í því hversu sérhæfð þau eru og langur verkunartími þeirra er. Alprazólam virðist vera meira kvíðastillandi en önnur benzódíazepín. Það slær fljótt á kvíða og veldur að öllu jöfnu ekki sljóleika. Þol myndast yfirleitt við róandi áhrifum lyfsins en síður við kvíðastillandi áhrifum þess. Alprazólam raskar að einhverju leyti eðlilegu svefnmynstri á þá leið að draumsvefn minnkar hlutfallslega. Þetta er skammtaháð, röskunin verður meiri eftir því sem teknir eru stærri skammtar. Lyfið er notað vð flemtursröskun, með eða án víðáttufælni, kvíða, eirðarleysi og spennu.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Skammtar eru einstaklingsbundnir. 0,25-2 mg í senn allt að 3-4 sinnum á dag.

Áhrif á kvíða: 1-1½ klst.

Misjafn eftir einstaklingum.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef lyfið er tekið reglulega: Taktu lyfið ef færri en 1 klst. líður frá því að taka átti skammtinn. Annars skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hætta má töku lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar. Ef lyfið hefur verið tekið í langan tíma á ekki að hætta töku þess nema í samráði við lækni. Skammta skal minnka smám saman.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Alprazólam hentar ekki til langtímanotkunar. Lyfið er vanabindandi og fráhvarfseinkenni geta komið fram þegar notkun þess er hætt eftir langan tíma.

Aukaverkanir

Sljóleiki kemur fram hjá um 30% sjúklinga í upphafi meðferðar, en dvínar vanalega eftir nokkra daga.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Sljóleiki
Ósamhæfðar hreyfingar
Skapgerðarbreytingar, ofskynjanir
Útbrot, kláði
Öndunarbæling

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Róandi og kvíðastillandi lyf
Mylan
Virkt innihaldsefni: Alprazólam
Skráð: 1.7.2009
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: G AL 0.25
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 9 mm
Lögun: Sporöskjulaga Breidd: 5,5 mm
Kúpt Þvermál: 0 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 0,25 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir einhvern tíma misnotað áfengi eða lyf
- þú sért með kæfisvefn
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú sért með öndunarfærasjúkdóm
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:

Lyfið berst í brjóstamjólk. Þess vegna er það ekki ætlað konum með barn á brjósti.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:

Aukin hætta er á aukaverkunum. Minni skammtar eru notaðir.

Akstur:

Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með hæfni til að stjórna ökutæki. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:

Eykur sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Ávanahætta:

Alprazolam getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Alprazólam getur haft áhrif á getnaðarvarnarlyf til inntöku. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta dregið úr virkni lyfsins. Öll lyf sem hafa sljóvgandi áhrif á miðtaugakerfið geta aukið sljóvgandi áhrif alprazólams og ætti því að forðast að taka þau samtímis.

Má ekki nota með
Sjá allt (42)