Lyfjaform:
Freyðitöflur til inntöku.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 1-2 freyðitöflur í senn 1-4 sinnum á dag. Töflurnar leysist upp í vatni. Hver tafla inniheldur 324 mg af asetýlsalicýlsýru.
Verkjastillandi áhrif koma eftir 20-30 mín. Hámarksáhrif nást eftir 1-2 klst.
3-4 klst.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Ef lyfið er tekið við tilfallandi verk má hætta að taka það þegar ekki gerist lengur þörf fyrir það.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
Ekki er mælt með langtímanotkun á þessu lyfi. Það er einungis notað eftir þörfum. Langtímanotkun þessa lyfs getur leitt til myndunar á magasári og valdið háþrýstingi.