Alendronat Ranbaxy

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Alendronat Ranbaxy

Alendrónat, virka efnið í Alendronat Ranbaxy, minnkar niðurbrot beina. Venjulega er jafnvægi á niðurbroti og myndun beina í líkamanum, en með aldrinum verður beinmyndun smám saman hægari en niðurbrot þeirra. Eftir tíðahvörf hjá konum er sérstaklega mikil hætta á beinþynningu og þar með aukinni tíðni beinbrota. Alendrónat er notað við beinþynningu kvenna eftir tíðahvörf. Það dregur mikið úr niðurbroti beina án þess að hafa áhrif á beinmyndun og minnkar þannig líkur á hryggjarliðs- og mjaðmargrindarbrotum. Beinmassi eykst þvert á móti þegar lyfið er tekið. Ólíkt etídrónati (sjá Didronate) veldur alendrónat ekki beinmeyru og því þarf ekki að gera reglulega hlé á meðferðinni. Það getur aftur á móti valdið ertingu ofarlega í meltingarveginum, sérstaklega í vélinda. Mikilvægt er að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum læknis um töku lyfsins til að minnka hættuna á þessum aukaverkunum.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

Ein tafla (70 mg) einu sinni í viku, að morgni, a.m.k. ½ klst. áður en matar eða drykkjar er neytt eða önnur lyf eru tekin. Töflurnar gleypist með fullu glasi af venjulegu vatni. Má hvorki tyggja þær né leysa upp. Ekki má leggjast í lárétta stöðu fyrr en eftir fyrstu máltíð dagsins.

Áhrif lyfsins á beinþynningu koma fram á 3 vikum.

Eftir stöðuga töku lyfsins haldast áhrifin á beinþynningu í 12 til 60 vikur eftir að töku þess er hætt.

Nauðsynlegt er að neyta kalkríkrar fæðu og D-vítamíns.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið næsta morgun eftir að þú manst eftir því. Haltu síðan áfram að taka eina töflu á viku sama dag og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða.

Aukaverkanir

Lyfið þolist yfirleitt vel. Kviðverkir eru algengasta aukaverkunin. Oftast eru aukaverkanir lyfsins vægar og sjaldnast þarf að hætta töku lyfsins vegna þeirra.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur
Kviðverkir, hægðatregða, vindgangur
Meltingartruflanir, niðurgangur
Verkir í liðum og vöðvum
Þaninn kviður
Kyngingartregða, sár í vélinda, súrt bakflæði
Blóðug uppköst eða blóð í hægðum
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Lyf við sjúkdómum í beinum
Ranbaxy
Virkt innihaldsefni: Alendrónat
Skráð: 1.4.2009
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: A 4
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0 mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0 mm
Flöt Þvermál: 11 mm
Deilistrik: Þykkt: 3,5 mm
Styrkur: 70 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú eigir erfitt með að kyngja
- þú sért með magasár eða magabólgur
- þú sért með nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með þrengsli í vélinda eða meltingarvegi
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Lyfið er ætlað konum eftir tíðahvörf. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið er ætlað konum eftir tíðahvörf. Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Sé áfengis neytt í miklu magni eykst hættan á byltum sem eykur hættuna á að sjúklingar detti og brotni.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.

Milliverkanir

Til að lyfið nýtist sem best verður að líða að minnsta kosti hálf klukkustund frá inntöku lyfsins þar til önnur lyf eru tekin inn. Annars eru engar þekktar milliverkanir.

Getur haft áhrif á