Aerodiol (afskráð okt. 2011)

Fara í leitarvél Prenta
Upplýsingar um lyfið
Aerodiol (afskráð okt. 2011)

Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Það er gefið eitt í hormónameðferð eftir tíðahvörf eða eftir brottnám eggjastokka. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar líkur á beinþynningu þar sem estradíól heldur áfram eðlilegu viðhaldi beina.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Nefúði.

1 úði (150 míkrógrömm) í hvora nös daglega.

Ekki að fullu þekkt.

Ekki að fullu þekktur.

Engin.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hætta skal uppbótarmeðferð eftir tíðahvörf í samráði við lækni.

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Ákveðið nánar í samráði við lækni.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru tíðari í upphafi meðferðar og eftir því sem skammtar eru stærri.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Breytingar á kynhvöt
Hnerri, nefrennsli, blóðnasir
Höfuðverkur, ógleði
Náladofi
Eymsli í brjóstum
Óeðlilegar blæðingar
Gula
Háþrýstingur
Útbrot og mikill kláði
Breytingar í brjóstum
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Kvenhormón
Servier
Virkt innihaldsefni: Estradíól
Skráð: 1.1.2003 Afskráð: 1.10.2011
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú sért með astma
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Lyfið er aðeins notað eftir tíðahvörf.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:

Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.