Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið fer yfir fylgju. Meta þarf ávinning fyrir móður gagnvart hugsanlegri áhættu fyrir fóstrið.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og skal því ekki nota á meðan barn er haft á brjósti.
Börn:
Skammtar eru einstaklingsbundnir.
Eldra fólk:
Skammtar eru einstaklingsbundnir.
Akstur:
Lyfið getur valdið truflunum á sjón- og taugakerfi. Ef þú finnur fyrir svima, syfju eða þú átt í erfiðleikum með að sjá skýrt eftir notkun lyfsins skalt þú ekki aka bíl.
Áfengi:
Áfengi ætti ekki að nota á meðan meðferð stendur því það getur valdið truflunum á sjón- og taugakerfi.
Annað:
Gæta skal sérstakrar varúðar við val á getnaðarvörn þar sem lyfið getur dregið úr úthreinsun getnaðarvarnalyfja. Hafir þú niðurgang lengur en í einn dag, skalt þú segja lækninum þínum frá því sem fyrst. Einnig skal forðast sólarljós og útfjólublátt ljós þar sem lyfið getur hugsanlega valdið illkynja húðbreytingum. Takmörkuð reynsla er hjá sjúklingum öðrum en hvítum.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.