Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.
20-120 mg í senn einu sinni á dag. Forðatöflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja.
Við háþrýstingi: 20 mín eftir inntöku (lengur með forðatöflum).
12-24 klst. eftir stakan skammt; 24 klst. eftir stöðuga notkun.
Greipaldinsafi getur minnkað útskilnað nífedipíns úr líkamanum.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Án vandkvæða.